Confidence is the sexiest thing a woman can have. It's much sexier than any body part.

LiFe Is SoMeThInG tHaT eVeRyOnE sHoUlD tRy At LeAsT oNcE

05.10.2008 20:09:03 / veran_

Já blesss

nýtt blogg.... www.gudnadottir.bloggar.is :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 12:54:14 / veran_

[Dansi Dansi Dans]

Í kvöld já... þá verður sko dansað:)

Það verður tekin smá pása frá lærdómi í kvöld og hrist bossann við ljúfa tóna Hjalta Heiðars og Róberts ketilssonar;* í Hvítahúsinu!  mæta mæta, 

Ááánægjulegt Nokk!

Ég var í enskuprófi í morgun... get ekki sagt að það hafi lagst vel í mig það blessaðar próf, endalausar þíðingar og svona skemmtileg heit, en maður nær þessu nú samt vonandi, svo er það FÉL og STÆ á morgun, og ÍSL503 á Fös!

Ekki margt búið að gerast hjá Kjéllingunni... lærdómur og kúr að mestuleyti bara, þetta fer nú alveg að verða búið og þá verður vonandi slett úr klaufunum, útskriftarpartý og árgangsmót á næsta leyti:)

Ég ætla segja þetta gott í bili, Hjalti fer alveg að koma sækja mig!

þanga til eftir prófin, Ciao Bellas;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 17:37:11 / veran_

[Öryrkjafílu Múslí]

Langt síðan ég bloggaði síðast, ekki eins og það sé eitthvað nýtt í fréttum.

ViL benda á eitt það alfyndnasta sem ég hef séð á ævi minni, inn á YOUTUBE, en það heitir  ---> Konfekt - Tussuduft.

En já við skelltum okkur á söngvakeppni framhaldsskólanna núna á síðustu helgi og það var alveg hreint þrusu góð helgi, margt skemmtilegt átti sér stað og mikið hlegið, dansaði og drukkið.

Aron, Óli Helgi, Arnar, Ragnheiður og danspíurnar kepptu fyrir okkar hönd og ég gæti ekki verið mikið stoltari af þeim, þið voruð awesome beibos.

Myndir af ferðinni eru komnar inn á Myspacið, www.myspace.com/vera87
heill hellingur af skemmtilegum myndum:)

Á þriðjudaginn brunaði ég svo út á flugvöll að sækja ástkonu mína hann Rónbert mér til mikillar ánægju og tilhlökkunar, við stoppuðum rétt við hérna upp á skaga og dúndruðum svo upp í Húsafell í bústað yfir eina nótt, það var mega næz, enda búin að sakna hans like Crazy! :* :)

En það er ekki margt annað búið að gerast í mínu lífi.. er bara að reyna klára þennan blessaða skóla svo ég geti útskrifast í maí! whOOp WhooP...

Ætla fara finna uppskrift af BBQ Ribs fyrir ma svo hún geti farið að elda ofan í okkur fjölskyldumeðlimi á skólabraut 20:)

heyrumst í þessu.

Lyfi Tussuduft!



» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 17:58:52 / veran_

[Já.. stressið leynir sér ekki]

Jæja héðan er allt frábært að frétta fyrir utan grjótið í maganum á mér!
Ég er semsagt búin að skila inn umsókninni og möppunni fyrir listaháskólann,, og nú er það bara að bíða og sjá hvernig þetta fer...

Baldvin og ég skunduðum í gær 28.mars niður í Myndlistadeild listaháskólans og skiluðum inn möppunum og meðfylgjandi gögnum.. þegar á staðinn var komið þá áttuðum við okkur aðeins betur á því hvað það er erfitt að komast inn eitthvað um 260 krakkar búnir að sækja um og við þekkjum ekki nema kannski 20.... síðan fara 50-60 krakkar af þessum 260 í viðtal og aðeins tæplega helmingurinn af þeim kemst inn... þannig að... hnútur í maga? JÁ!

En þá er bara málið að kúra yfir despesperat housewifes með Robbalobb;* eða Berta 2000 eins og Bergur vill kalla hann hehe... :)

Ég blogga um leið og ég fæ að vita hvernig fer.. þ.e.a.s hvort ég sé á leiðinni í skólann hér eða yfirgefa ykkur fyrir eitthvað annað land þarna úti... þangað til þá,, bæ lövz

Kær kveðja: Vera Stressbolti Líndal Guðnadóttir

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 18:21:59 / veran_

[Whoop_Whoop]

Já sælt veri fólkið!

Veit það er mega langt síðan síðast.... En Svona er þetta bara að vera á ÚTSKRIFTARÖNNINNI Whoop Whoop! :haha:

Get ekki beðið eftir að þessu ljúki og nýr áfangi í lífi mínu hefst, barneignir og gifting... haha, NAAAT. En ég er semsagt að gera möppu til að senda í listaháskólann hérna heima og annarsstaðar líka, fyrir utan okkar heimaland já,, Ítalía kemur sterk inn, bandaríkin og london líka.. og Barcelona! vá get ekki ákveðið... :)

En við krakkarnir fórum í mega góða bústaðaferð síðustu helgi! getið lesið frekar um hana á bloggi meistarans, www.blog.central.is/stefanj endless löng og ljúf færsla um þessa mjög svo góðu ferð,,

Hef ákveðið að taka þessa helgina að mestu leiti í Rvk, Róbert eigi heima og svona.. skemmtu þér í fótboltastuðningsmannabústaðarferð Hotstuff;*  Eeeeen ég er stödd heima hjá meistara Stefáni í þessum skrifuðu orðum, hann er í sturtu og svo erum við að fara halda í algjöra grísaveislu hehe...  út að snæða og bíó! bara klæF!

En jább jább Whoop Whoop, ætla skottast fram að mála á mér smettið,, verð að vera sæt fyrir meistarann,,

Þar til næst, bæææ beibímöffinz.




» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 14:10:55 / veran_

[....Are You In?]

Hvernig væri að við myndum halda surprise partý fyrir Ásdísi okkar, þar sem hún er nú að fara til útlanda frá okkur í byrjun Feb... vóv, í byrjun FEB!..... Ég ætla allavega að byrja plana það og ef eikker vill vera svo vænn að joina... me would love it very mútzhí.

 

Skólin fer svo að byrja og svona, fékk frááábæra stundatöflu! zjííí, frí ALLA föstudaga... erum við að tala um gleði í hjarta eða... og svo er ég bara í einum tíma á miðvikudögum frá 5 mín í 10 til korter yfir ellefu! ljúfa líf! samt að taka 28 einingar... það er kannski ekki svo ljúft, en maður verður víst að klára þetta helvíti:) Hlakka svo til að útskrifast!

 

En nóg um það, ég er farin í Ræktina, og svo eikkað leikrits unit í kveld :D zjibbí!

 

Bletzk

 

 Fórum á þessa um daginn, Hún er Fín, mæli með henni :D

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 14:03:21 / veran_

[Er pabbiðinn meððéér eða?]

Já... þetta er ég búin að hlusta á síðustu daga hehe, held að svona allavega 90% af þeim sem Hjalti Heiðar nokkur Jónsson segir þessa eldfersku setningu við skilja hana ekki...  

En svona fyrir ykkur, þá var Pétur Jóhann Sigfússon í þætti hjá henni Evu Maríu og fór að tala um svona slagara, t.d þegar eikker er gríðarlega hallærislegur þá spyrðu: Bíddu... Er pabbiðinn meððéér eða? og ef eikker er í ljótum fötum þá spyrðu: Hva.. er þetta úr dánarbúi?

Pétur er yndislegur:)


Jólin eru að ganga í garð.. trúi því ekki hvað þetta er allt fljótt að líða! hefði ekkert á móti því að vera pakka niður fyrir kanarí bara og svona næz, þetta voru með betri tímum lífs míns...

 

Ég er komin í Jóla"Frí" verð að vinna í Álverinu, Olís og eitthvað á barnum á Breiðinni.. wúha! hehe:) Það var voðanæs að komast aftur upp í álver þótt ótrúlegt sé.. tíminn fljótur að líða og nóg af péning, búin að taka eina Barvakt hehe á Breiðinni og líkaði bara vel, fínt að vera vinna bara á ballinu... þá ertu að vinna en samt á balli, edrú og færð pening í lok kvölds:)

 

Er búin að versla flest allar jólagjafirnar, Bergur er einn eftir.. efiður krakki, en þetta kemur í kv0ld ég og Hjalti beibí ætlum að skella okkur í byen að kaupa jólagjafir og svona næsheit, fæ mjöglíklega að heyra : Er pabbiðinn meðééérrr alla leiðina en það er í lagi, því það eru að koma jól:) hehe...

 

Nóg í bili, later luvs:)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 13:23:08 / veran_

[Keipti mér sveitasnakk, sveitasnakk í gleri...]

[....Pabbi fór í bað og ég hljóp út á hlað að éta sveitasnakk, TAKK!]

Gott lag.                                                                   

Skólavikan tekur nú brátt enda og þá má manni byrja kvíðafyrir einkannablaðinu sínu...

í tilefni af því tókum ég og Hjalti okkur til í gær og ákv. að læra saman, vorum að til að verða hálf þrjú eða eikkað, ég málaði og skreytti skissubókina mína á meðan Hjalti gerði mjög svo fín Föt í sína skissubók, stolt af kjellinum;)

Krakkarnir í Fva voru að Dimmitera á Föstudaginn síðasta og ég verð að segja að þetta var bara með betri Dimmisjóvum sem ég hef séð, klapp fyrir ykkur krakkar! :) Svo var ball seinna um kveldið og við skelltum okkur á það eftir Afmælisveislu heima hjá Bjarka, mér fannst bara svaka gaman á ballinu, ég og Fedda vorum Edrú og dönsuðum alveg endless mikið, sem þíðir að tónlistin var alveg að gera sig, Joey D og Víkingur spiluðu fyrir fullt hús af ofurölvi fjölbrautarkrökkum og stóðu þeir sig með príði!

Breiðin er búin að standa sig massa vel í skemmtanahaldi síðustu helgar kíktum á efri hæðina eftir Fva-ballið og svo á Ball daginn eftir með á móti sól og Joey D á efri, held að flest allir með viti hafi haldið sig á efri, með þessu áframhaldi verðum við flest öll orðin alkhólistar, eða já meiri alkar en áður... En ég ákvað að hugsa fram í tíman og ætla vinna á barnum bara á Pallaballinu 1.des :D híhí..

Við Olís-fólk skelltum okkur í Óvissuferð á Lau. héldum til R.V.k kukkan ellefu með öl í hendi, reddí í slaginn:)

-Byrjuðum á Lacer-TAG sem var bara gaman, fílaði mig vel með byssu í hendi hehe.. enda sigraði kellingin! wúha.. svo tókum við einn liða leik líka og liðið mitt tapaði.. eeeenn samt var ég með næst hæðsta skorið muahaha.. Aron Dan var hæðstur og var hann líka með mér í liði áttum tótallí skiliði að vinna:) híhí...

-Svo var það gamla góða keilan, Stóðu sig allir með Príði.. voru ekkert endilega góð en það var svo sannnarlega gaman að fylgjast með ákv. aðilum.. vill meina það að Aron Dan sé lélégasti keilu splar sem ég hef séð.. haha, kastaði kúlunni á mjög svo frumlegann hátt:) Andri Már átti met í að ná bara ekki fellu.. og það sem betra var.. það stóð alltaf ein keila eftir! haha... en hann náði að lokum einni og hoppaði hæð sína af gleði dleyið litla hehe:D

-Svo skelltum við okkur á skauta, byrjuðum á því að sjokkera heilan flokk af 3-barna múttum sem gláptu á okur með mikilli fyrirlítningu meðan við slurkuðum síðustu sopunum af bjórnum í okkur hehe, síðan hentum við okkur í skautana og beint á Svellið (nema Haddi hehe) en entumst ekki lengi á þeim bænum, Aron var klárlega bestur á skautum, núhh hva? :) hehe...

-Kíktum svo heim til mín, Ég,. Fedda,. Andri Már,. Aron Dan,. Elísabet,. Haddi og Elínborg, pöntuðum okkur Dómí pítsur (nema Haddi hehe, hann fékk sér Galito brauðst.) rosa góðar pítsur en fanta léleg þjónusta! ætla ekkert að tjá mig meira um það;) sátum sátt niðrí herberginu mínu, sötruðum Bjór og spjölluðum.

-svo klukkan 8 þá hentumstvið uppá breið á eftri hæð staðarins og hófum alvöru gleði.. með góðri tónlist og meiri bjór hehe, Elínborg tók eigandann á teppið þar sem að bollan sem við áttum að fá, átti aðinnihalda svo mikiðsem 350ml af vodka haha við vorum 20! þannig við fengum nýja bollu =p wííjj...   Ballið byrjaði svo klukkan hálf tólf og byjraði fólkið að tínat inn eikkað um hálf 2 or sum! hehe.. við skemmtum okkur mjög vel á þessu balli, þakka fyrir góða samveru kiDz;*

Nokkrar frá Kanarí 2006-2007.. vá þetta var yndislegt!

 

Úti að borða á uppáhaldsstaðnum okkar! shitt það var svo gott pasta þarna!!! :)

Á leiðinni á djammeðh.. hehe sætu sætu!

Ein þynnkumynd! vorum að fara versla:)

Jæja nóg af bloggeríi.. ætla fara mála myndir! og teikna teiknimyndasögur.

Bletzk;**


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 11:30:17 / veran_

[Alveg merkilegt....]

Já Sæl.

 [(Var að horfa á eina af Tim Burton myndunum mínum í gær, Corps Bride og ákv. að skoða aðins hvernig þetta er nú allt gert, ég er gjörsamlega heilluð af öllu sem tengist myndunum hans, karakterarnir eru hreinasta snilld! tala nú ekki um umhverfið! lööööööööv him!!!)]

Ég ákvað að skella mér í bloggfærsluskrif, svona í tilefni af því að ég er í eyðu...

Var að koma úr módelteikningu, það var svosem ágætt.. samt ekkert allt of hrifin af þessum model áfanga, fékk nú samt meked meked hrós fyrir myndina mína:haha:8) Ingiberg var ánægður með kellinguna.

Held ég sé bara að fara ná öllu, nema kannski ensku... þar sem ég er í P og kennarinn minn hefur prófin ávallt á vitlausum tíma og lætur mig eigi vita af breyttum tíma... gletað! :whut:

Eeenn... nóg um skólamálin, þetta var bara hin ágætasta helgi sem leið! stutt yfirlit hér:

Föstudagurinn:  Okkur misþægu börnunum [[Hjalti, Vera, Ásdís, Hallur og Rebekka]] var boðið í mat hjá Foreldrum okkar. en matarboðið var haldið uppá safnarsvæði, þar elduðu Jón [pabbi Hjalta] og Guðni [Pabbi minn] dýrindis nautalundir og meðlæti sem fékk mann til að slefa í lítra vís, að snæðingi loknum og já.. reyndar á undan og meðan honum stóð voru allskyns leikir og uppátæki í boði foreldra og barna, Sigtryggur[pabbi Ásdísar] var með Botzha keppni milli unga og gamla fólksins... að sjálfsögðu unnu gamlingjarnir þar sem botzha er íþrótt eldriborgara hje hje, Svo vorum við börnin með Pubquiz um okkur, sem uppljóstraði ýmsu um okkur börnin... ég var að sjálfsögðu þægust hehe.. Svandís[mamma Rebbú] og Helga[mamma Ásdísar] voru svo með spurningaleik sem endaði ansi skrautlega.. þar sem Heiðrún[mamma Hjalta] reif nöglina hálfa af Ásdísi og endaði sjálf með sár á hendinni, Pabbi var illa tapsár ásamt Sigtryggi og Heiðrúnu.. þau erdu eins og Sjúddi x Aron Dan í 3 veldi hje hje.. Hallur kom með Kæró með sér, hana Tinnu henni hefur mjög líklega ekki þótt foreldrar okkar neitt sérstaklega eðlileg...I dont blame her.                En þegar klukkan var orðin rúmlega tvö ákváðum við krakkarnir að skella okkur á Mörkina og þar hittum við Gumma og Sölva, Gummi blæddi að sjálfsögðu töfrateppi á liðið! buddan orðin skuggalega létt þar á bænum eftir kveldið bíst ég við... hehe,         Að mörk lokinni, kíktum ég og Hjalti heim til Sigga back en þar voru þeir saman komnir nokkrir drengir + Unnur hans Sigga, ágætis stemmning þar svosem... Síðan bjallaði Robbalobb og tjáði okkur það að Almar væri með smá teiti heima hjá sér þannig að við héldum af stað þangað, fengum far Hjá Geir og Aníta og Rakel kíktu með oss, þetta var nú ansi rólegt partý heima hjá honum Almari heh en þar voru Salvar, Almar og Róbert þrír í góðum fíling hehe.. Salvar tók léttann dans fyrir okkur stelpurnar á meðan Róbert hékk á msn og Almar og Tjalli Rokk voru í Sígó:) hehe... frábært teiti, síðan stal Rakel bílnum hans Almars og henti mér og Robbalobb hjem... enda þreyta og já.. ofurölvun hjá sumum farin að segja til sín haha, fengum mjög skemmtilega heimsókn frá honum Salvar síðar um nóttina/morguninn sem vakti mikla lukku haha...... spes eintak þar á ferð;)

mjög vel heppnað kveld barasta:)

Laugardagurinn:  Fór mest í það að reyna finna sér búning fyrir partýið sem var um kveldið en það var scary-búningapartý hjá Möggu elfu og bróður hennar Gunnar, ég endaði í Emo-Jólasveinastelpu búning hehe.. alveg með þetta kellingin! Ásdís og ég gerðum 0kkur reddí saman, horfðum á Liverpool - Fulham með pítsu við hönd.. frekar leiðinlegur leikur þar á ferð, síðan héldum við heim til Margrétar og var þar fámennt en góðmennt hehe, síðan fór fólkið að tínast í partýið, allir í dýrindis búningum! þarna voru fólk dressað sem Kind, Svín, Górilla, Nornir, Sjóræningjar, Skrattar, Corps-brides, Vélmenni, Prestur og Nunna, Löggur, flugfreyjur, rússi, sjóliði, kisulóra, playboy kanína og margt margt meira sniðugt! Við sötruðum illa sterka bollu úr skál og djúsvél haha! með bestu list.. það enduðu allir frekar weisted og hressir á mörkinni, ég fór þangað ásamt kærasta mínum honum Jóhannesi en hann þjáðist af anorexíu og lést daginn eftir sökum áfengiseitrunar, ofkælingu og vannæringu... þar hitti maður helling af góðu fólki, Sibbi var afmælisbarn kveldsins til hamingju með það! ;* eftir mörkina var haldið heim til Guðmundu og heimis en þar átti að vera partý hehe... ekki svo, þegar við komum inn voru Bjössi, Doddi og Birkir í Fifa og Bára og Hafdís Mjöll á trúnó inní eikkerju herbergi..... heheh, við Benni, Lexi og Hjalti settum pass á það, skoðuðum sjúklega flottu jakkafötin sem Guðmunda saumaði og komum okkur heim:D takk fyrir að redda mér fari Hafdís Mín btw.. ég hefði orðið úti ! :D það var voða gott að komast upp í hlíja góða rúmið;*

Sunnudagurinn: Brá heldur betur þegar ég Vaknaði öll útí gervi sárum og með varalit út á eyra... voða sæt hehehe.... dreif mig í sturtu og þvoði búninginn af mér, var komin með ógeð af því að vera svona Emo^^ heh,... Síðan var það bara vinna fram á kveld og heim í vídjókúr:)

 

Reading - Arsenal í gær, þrusu góður leikur.. mínir menn að standa sig;* leikurinn fór 3-1 fyrir Arsenal, hefði reyndar með réttu átt að vera 4-1:$ en þar sem línuvörðurinn var á sýru þá misstum við það markið... ansans! Eeeenn... við erum á toppnum og eigum einn leik til góða, skulum bara halda okkur þar! okaaay:haha:

Jæja.. nóg af bloggeríi í bili! :)

Later luvzz;*


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 13:31:09 / veran_

[I tried to sniff Coce, but the icecubes got stuck in my nose...]

........Mig dreymdi að ég gæti ekki hlaupið né öskrað

það sökkar,,  

 Híhí... Æjj þessi hundur er svo Tiny:)

 

Jæjah, þá er það bara lokaspretturinn af þessari önn.. hva 3-4 vikur eftir ?     Þetta gerist ekkert smá hratt! Þá er það bara vinna vinna eins og maður getur! Það gengur bara alveg ágætlega in skúl, allavega í verklega.. vill meina að bókleg fög og ég eigum ekki samleið í lífinu hje hje... :$

En Helgin sem leið var bara alveg ágæt, Fedda gisti hjá mér á Fös og við gerðum mjög Heiðalega tilraun til að djamma... það endaði í eikkerju frekar kojulegri drykkju, við kíktum aðins til Inga og já stemmningin var vægast sagt dauð;) ...

Eeenn... á Lau þá kíktum Ég, Fedda, Ásdís og Vésteinn suður... Komumst að því að við búum í aðins of litlum heimi... þar sem Ásdís var búin að vera tala um Kalla bróður sinn og hljómsveitina hans og þó aðalega söngvarann eða Braga, og þegar við komum í kolaportið til að hitta þá og hlusta á þá spila þá var þetta bara Bragi sem ég hafði unnið smá með í Álinu í sumar, alveg merkilegt.. En já þeir voru bara þrusu góðir, hafði ekki hugmynd um að Bragi gæti sungið svona... Rosalegur söngvari þar á ferð.. fékk hroll! Ásdís Þú hafðir rétt fyrir þér:)                     þegar líða fór á kvöldið kíktum við -Vésteinn með Kalla á eikkern tælenskan vetinigastað sem var alveg sjúklega góður! mmmMMmmm... þegar við ætluðum að ganga út af staðnum fór Ásdís að tala um lagið sem var í útvarpinu og ég asnaðist til að kalla GOTT LAG en ekki Takk fyrir.... :lol: hehehe steikin Ég....

Svo var haldið heim til Stefáns í afmælisveisluna hans sem var bara alveg in ágætasta, vorum ca 15 vinir og kunningjar komin saman í drykkju og gott spjall, en við gátum ekki joinað bæjarferð þar sem hálkan var farin að segja til sín og Ásdís var á rennisléttum sumardekkjum:) haha... vorum nett hræddar á leiðinni heim, en það hafðist og við mættum í partý heima hjá Inga uppá skaga eikkað yfir eitt :) það var nú skárri stemning heldur en á Fös og endaði bara í hinu ágætata partýi! og að sjálfsögðu nappaði Ásdís Gogga með sér heim, ekki pabba hans Salvars nei.. heldur tuskudýrinu hans Rikka lille bróðir hans Inga! hehe....

..... Tók gott Incubus session í gær og já! mí lovs them........

Næsta helgi verður Þrusu góð, Ball og tónlistakeppni á Föstugainn, Ný dönsk spilar fyrir dansi á Neðri hæð breiðarinnar og Dj Halimal (Robbi og Salsi hehe) verða á efri hæðinni mér til mikillar ánægju:haha: þar sem mér leiðst oftast nær alltaf íslhljómsveitaböll... Dj-stemmningin á betur við mig, margir aðrir á sömu skoðun i guess;)

Svo er það Le. RvK á LAu. með Feddu.. ætlum að skella okkur í ammali hjá Bryndísi vinkonu okkar í bænum:) emmý vrður líka í R.v.K þannig að við sameinum vonandi leið okkar niður á skemmtistaði bæjarins seinna um kveldið;)

En nóg í bili!

Vera Líndal:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 15:49:22 / veran_

[Ný batterí]

 Vill minna fólk á að -----> Ég er Afmælisskvíza kl 00.00 ;)

 var búin að gleyma henni Emily minni:)

 

bún að gera nokkr breytingar hér á síðunni svona smá til að gerana aðeins meira fresh.... :D

Vil byrja á því að þakka öllum fyrir komuna á laugardaginn! en þá var haldið þrusu partý í tilefni af 20 ára afmæli okkar feddu :haha: vó.... tuttugu ára :$  Eeen ég er nú enn smápíka enda ekki orðinn tuttugu verð það kl. tólf á eftir, 19.okt! fyrir þá sem mundu það ekki:)

Afmælið gekk bara vel fyrir sig, ágætis mæting og allir eða já... næstum allir hegðuðu sér vel;)

Fengum svo miklar snilldar gjafir, poka með bara rauðum hlutum í, monsters in a pocket, legó kalla, safnglös, skartgripi, vasaljós, blóm, vín, dvdmynd, gjafabréf í Ozone, andlitsmeðferð og á eina reið frá tveim ónefndum aðilum:o og yyyyyndislega mynd af Salvari og Róbert í fermingakirtlum haha;*

Við tókum okkr góðan tíma á laugardeginum í að skreyta salinn, drullu góður salur BTW! vil þakka, jónasi, Gústa, Bergi og Hjalta fyrir blöðrurnar sem þeir blésu upp.. En þemað var semsagt svona svart og rautt með smá bland af póker fíling í stíl við búningana sem ég og Fedda vorum í hehe, drullu flottir:haha::haha: áð skreytingum lokið var haldið heim og gert sig reddí, þotið svo beint aftur upp að Æðarodda þar sem partýið var haldið í dimmu hesthúsahverfi hehe :) pantað eitt stykki Dómí með peppe (flott Oddný hehe) Mjög ljúffeng pítsa þar á ferð.. síðan tók gestina að streyma inn í salinn og ég á milljón að blanda "dass af hinu og þessu bolluna mína" hún var ljúf og skilaði sínu! Hér koma nokkur gullkorn úr ammælinu:

- Pabbi ákv. að koma okkur stöllum á óvart og hafði prentað út like 1mx1m mynd af mér og feddu síðan við vorum littlar hnátur ;)

- Andri Már marteins ekki svo lúmskur í að stela eplasnafs.. hehem :)

- Gummi Norge lenti í slag, núhh hva?! :haha:

- Benni, Arnar Már og Sölvi Már áttu dansgólfið:)

- Slagsmál brutust út þar sem einn aðili ákv ða kalla kærustu annars aðila skinku.. nefnum engin nöfn ;) hehe..

- Gummi Norge ákv. að halda á borði sem endaði með því að honum var haldið niðri af ca. 10 strákum hehe;)

- Fedda fór í sleik við útlendinga vin Vésteins :)

- hann reyndi að fara í sleik við Rebekku stuttu seinna..

- Það stal eikker símanum hennar Feddu... í anna sinn á stuttum tíma sem það gerist!! :^)

- Þórdís kom sá og sigraði, var full og tók flipp! ;* sátt með mína!

- Boðflennur voru ekki velkomnar og þeim var vísað á dyr, frétti að þær hefðu farið að grenja...hehe?

- Svava tók sleikinn á þetta, Stebbi beið hennar heima hjá heni um nóttina til að vera viss um að hún skilaði sér heim og væri ein á ferð hehe, alltaf að passa uppá okkur stelpurnar sínar ;)

- Það stal eikker Vodkanum hennar emmýar hmm...?

- Andri Már Marteins ætlaði að hafa það af alla nóttina að vera í fötunum! en neeee.... ákv að dansa ber að neðan fyrir okkur sem vorum þarna sem lengst :) hehe flottur! ;*

- Hver stal augnskugga úr afmælisgjafa pokanum mínum? og af hverju augnskugga hahah :klikk:

- Allir sem snertu áfengi þetta kveldið enduðu hellaðir!

- Stebbi ákv. að taka alla á trúnó;) haha

- lenti í fyndnasta rifrildi/slag við ásdísi inná klósti ;) ;*

-Dabbi á vinninginn í tiltekt í restina af kvöldinu! drullu sátt með þig! :)

- Vil þakka ölllum hinum sem hjálpuðu til við þrif áður en húsið var yfirgefið;*

..... endilega kommentið með fleiri gullkorn úr partýinu ;)

 

takk fyrir frábært ammæli snúllur!! :)

 

 

en svona alveg útúr umræðunni...... tjekkit

Fékk feitt íllt í beinin! :( þetta er helt ikke normalt!


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 19:56:58 / veran_

[Jæja gott fólk... dýrið hefur ákv. að blogga]

Það er svo langt síðan að ég Bloggaði að ég skammast mín ... Er klárlega orðin ein af þeim allra lötustu í þessum blogg heimi! :$

 

Een... ég ætla reyna bæta mitt ráð! 8)

 

búin að vera í dvala frá blogginu;) hehe.. klárlega svona hot!

 

Margt Skemmtilegt framundan!

- oktoberfest [Á morgun]

- Dirty South! [12.okt]

-  Afmælið hjá mér og Feddu! [Vilt ekki missa af því 13.okt!!]

En jæja já, ég og Fedda erum búnar að vera hörku duglegar að bera út boðskortin ásamt hjálp frá nokkrum elskulegum aðilum:)

Erum búnar að plana alveg helling, fólk að skrifa diska fyrir partýið útum allan bæ, fá salinn uppí Æðarodda, redda hljóðkerfi, Hjalti og Gústi buðu sig fram í stirpp og margt margt meir! :)

Skólinn gengur bara stór fínt, kennararnir ánægðir með Veru sína:) er búin að vera mála og teikna allann daginn eins og ég vil hafa þetta! :D útskrifast næsta vor og ætla reyna fara kenna myndmennt in skúl yah! svo flytja til Ítalíu eða Danmörku! hlakka sjúklega til... Wúha :haha:

En já vinna þessa helgi bara.. róleg kellingin, ætla ekki á oktoberfest, áv. að taka vakt með Emslu minni;*

  1. Afsakið ef textinn er eikað bjagaður.. lykklaborðið er bara soldið klístrað eftir að ég sullaði appelsínusafa á það:) hje hje...

En nóg í bili! ætla fara koma mér í vinnuna:) svo ég hafi efni á því að vera í miCru genginu með Ernu og Birgittu! hehe...

 

Later luvz;**


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 22:34:57 / veran_

[The thing always happens that you really believe in; and the belief in a thing makes it happen. ]

     A lie told often enough becomes the truth.     

 

Jæja ég hef ákv. að blogga sjálf í þetta skiptið, þakka síðasta manni sem bloggaði hérna á þessari blessuðu síðu, færslan var alveg ágæt.. eða já þeir sem tóku henni á léttu nótunum þóttu hún fyndin, Mamma hló sig ekkert máttlausa yfir henni neitt.. enda ekki skrítið.

Herðu ég er búin að eyða síðustu tveimur dögum í borg óttans, bara varð að komast aðeins frá Akranesi, voða gott að fá að sjá hann Stebba minn, enda gerum við ávallt það sem við erum best í...... Vera feit inní okkur.

smá yfirlit:

-Tókum Hryllingsmyndir, Grudge 2 og pulse.. sem er glötuð Btw:!:

-Átum óendanlega mikið af óhollustu, snakk, kanilsnúða, æðibita ofl...

- Ower dósuðum á Will og Grace... elska þessa þætti!

-Fórum í sund, gamlir kallar að reyna við hall, hoppandi börn og engin Gufa:$ 

-Hallur horfði á Grudge með okkur, það var skemmtun útaf fyrir sig:lol:

-Átum á Friday´s Yammi... Vinur Halls gaf okkur forréttinn, koss á hann.

-Fórum ótrúlega seint að sofa, lifi baugar.

Helgin síðasta var alveg hreint ágæt bara, kosningagrill.. dularfull bloggfærsla og fleira:lol:

smá yfirlit á helgina líka:

- Samfylkingargrill á Fös, pulsumeistararnir Vera og Ásdís Spreyttu sig á grillinu.

- Fanta gott sinnep á svæðinu!

- Syna, Ferlegheit og Sprengihöllin spiluðu... bara flottir allir saman! ;)

- hver stal eikkerju shitti frá Strákunum!?!? ekki vinsælt!!!!

- Þennan sama föstud. var skrifuð dularfull klámfengin bloggfærsla á blogginu mínu klukkan eitthvað um níu, sökudólgurinn ekki enn fundinn en þykir hafa góða rithönd, þrátt fyrir nokkrar villur í málnotkun af Ásdísar mati hehe.. skamm skamm perrakall, gefðu þig framm... :)

- Djammið eftir grillið var alveg ágætt.. mörkin sökkaði!

- Vorum heima eftir hana, drápumst yfir donnie darko (Þrusu góð mynd)

- Laugardagurinn var mjög svo rólegur!

- Kíktí bíó með: Samma, Fjölni og Kára, Blades of Glory! hún ownar:haha:

- rúntur með Rappkrúinu: Íbba Skúnk, Beppu Skvíler og Karý Kúlu! ;) 

- Skútan og heim í Vídjókúr með Græna geimverubangsanum mínum.. :lol:

-Og á sunnudeginum hélt ég til Stefáns míns!

Það er ekki margt búið að bjáta á hjá kerlingunni fyrir utan þetta.. bara prófalestur, eða já svona heiðarlegar tilraunir til þess:$ hehe....

Næsta helgi verður vonandi góð! Eurovision og Kosningar..

Eitt að lokum, mér finnst svo fyndið þegar krakkar drulla yfir þessar kosningar og pólitík, ég sjálf er ekki mikið inn í þessu en reyni að fylgjast með og læra eitthvað.. ég meina þetta er eitthvað sem kemur okkur við og það eru svo margir sem eru eikkað: Vóffh.. stjórnmál eru bara eins og hebreska skil ekki jack! nenni svo ekki að fylgjast með því kjaftæði.. voða kúl.

hmm... þetta er eikkað sem kemur okkur öllum frekar mikið við, og ég er ekkert að tala um að allir eigi að fara ganga með barmmerki og fána eða neitt þannig.. bara allt í lagi að kynna sér þetta aðeins og sjá hvað er að gerast í kringum okkur algjörlega óháð því hverja við kjósum, well.. bara mín skoðun.

Enn já ég ætla fara reyna læra meira fyrir ljósmyndun sem er víst á morgun... hehe, svo vídjó gláp á eftir með Ásdísi minni eða eitthvað kósýlegt:)

SíjúBljéss;*

Sólarlönd... áramót, taka Canary á þetta bara.. væri svo til en þið? :)

 

 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 21:37:57 / veran_

[Doppusmíði...]

 

                                                                                              If I hadn't made me
                                                                                                       I'dve fallen apart by now
                                                                                                       I won't let em' make me
                                                                                                       It's more than I can allow
                                                                                                       So when I make me
                                                                                                       I won't be papier-mache
                                                                                                       And if I fuck me
                                                                                                       I'll fuck me in my own way
                                                                                   [Incubus- make yourself]

Hellow there and A happy summer.

Jæja gott fólk, síðasta skólavikan bara gengin í garð... Mikið ofboðslega þykir mér það yndælt, fer bara í 2 próf og eitt svona lilla eikkað, sem sleppur bara alveg, hlakka svo til að vera búin með þessa önn, skólaleiðinn að gera útaf við mann, eða já bóklegu greinarnar, verklegu sleppa asskoti vel, enda mín ástríða Æm söts A ArTí-FaRtí;*

Ég fékk símtal frá Norðurál í dag og *Spling*! kellingin fékk vinnu, ekkert smá sátt með það, ætla vinna eins mikið og ég get og koma í feitum plús eftir sumarið!.. tók smá túr um verksmiðjuna þarna um daginn þegar ég fór í starfsviðtalið og þetta er þokkalega stórt, ég fékk nett víðáttubrjálæði þarna inni, enda smá hnátan;)

Sumarið lofar góðu! verð í fríi alltaf þegar Gústi og Gummi eru í fríi og þegar ég er ekki á fullu að taka aukavaktir;) það er mjög gott mál, verðum að vera dugleg að skella okkur í skindi útileigur og þess háttar skemmtilegheit! :)

lokaballið er svo núna á Föstudaginn og ég er svona að velta því fyrir mér hvort maður eigi ekki að skella sér, verð eiginlega þar sem sæturnar mínar eru að dimmitera, vill ekki missa af þeim gubbandi fullum og svo frétti ég að þetta yrði grímuball sem er bara snelld! ;)

-Get ekki beðið eftir að sjá Dimmisjovid Btw! þið verðið tussu flott á því! :D

Við krakkarnir í Ungmennahreifingu Samfylkingarinnar erum svo að skipuleggja partý sem verður haldið líklegast núna á helginni, lýst ekkert smá vel á það! svo verður eitthvað meira skemmtielgt á döfinni:) allt í bígerð...

Hey, er eikker búin/nn að sjá þarna the messengers? ... erún good shitt? :) er svoddan hryllingsmynda frík...

 

En jæja nóg í bili sæta fólk;*

Svona að lokum, ein Erfið spurning!

  

Scarlett eða Angelina? .... hmmm


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 08:25:50 / veran_

[Don´t let me down, Im sorry... Forgive me]

 

 

Jæja þá er kominn 17. Apríl og styttist þá óðfluga í prófin blessuðu! ....  Ekki get ég sagt að mér hlakki neitt sérstaklega til að skella mér í þessi heilu tvö próf sem ég þarf að fara í,  STÆ og Listasögu 402:$ En restin er verkleg og gengur bara alveg hreint ágætlega! vona bara að maður nái sem flestu!! :haha:

Ég varð svo löt eftir páskafríið að ég dó svona næstum.. Gerði nú ekki mikið í páskafríinu annað en að liggja útaf og svona, Fór í matarboð hjá hjalta sem eldaði mjög svo ljúft læri! síðan var ég bara driver þegar páskaballið var og keyrði öllum mjög svo drukknu vinum mínum á ballið;) þau eru best, Sebbi fór á kostum!! :)

Þessi helgi var afskaplega róleg bara, Edrú og næz bara.. góð helgi barasta! :)

En já svo er það Pendulum á morgun! Á MORGUN! bwahh... get ekki beeeeeðið, þetta verður algjör snilld, hlakka til að sjá hvernig það verður að vera edrú þarna.. ætli ég geti ekki bara dansað enn meira!! :D síðast dansaði ég frá ellefu til 6 stanslaust og þetta var hin besta líkamsrækt! :)

Ég, Þórdís, Emmý og Heiður erum svo að fara á firstu dansæfinguna okkar í kvöld, líst fannta vel á þennan hóp okkar! munum reyna gera sem mest í sumar vonandi! :)

svo er það viðtalið í álverinu, kellingin er að fara reyna fyrir sér sem trukkalessa;) hehe... djöfull verð ég flott á því í verkamannaoutfittinu! :)

En ég er farin í Ljósmyndun! later luvs ;*

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 29185
Downcounter :)
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 8961 dögum
New York Baby!